Litlabyli treats framleitt á Flateyri Westfjords.


Litlabýli framleiðir heimagerða rabbabara-og aðalbláberjasultu, appelsínumarmelaði og öskju sem inniheldur hjónabandssælumix og rabbabarasultu.



Sagan


Litlabyli treats varð til af ósk frá gestum sem gistu hjá okkur á gistiheimilunu okkar Litlabýli. Í Litlabýli var boðið uppá morgunverð þar sem áhersla var lögð á heimabakstur og mátti þar finna heimagerða sultu, marmelaði og hjónabandssælu. Gestir Litlabýlis áttu það til að óska eftir að fá að kaupa hjónabandsæluna af morgunverðarhlaðborðinu en eins og allir vita væri ekki mikið varið í hana eftir marga daga í ferðatösku. Uppskriftin af hjónabandssælunni tilheyrir fjölsyldunni og sama með sultunar. Rabarbarann týni ég svo úr garði ömmu minnar. Rabarbaragarðurinn okkar er á Ingjaldssandi við hliðina á reykkofa þar sem reykt var grásleppa, hangikjöt og rúllupylsur á árum áður og öskunni síðan dreift yfir garðinn sem gefur þetta einstaka bragð. Rabarbarinn sem við notum í sultuna okkar er Vínrabarbari, hann er fínni, sætari og rauðari en sá sem almennt þekkist. Ég er fimmti ættliðurinn sem tíni rabbabara úr þessum garði og nýti til matargerðar. Rabarbari er sú jurt sem alltaf vex alveg sama hvernig viðrar og er best að tína hann miðsumars.